Vel heppnað Floridanamót

14. maí 2015

| Garðar

Vel heppnað Floridanamót

WP_20150514_002Floridanamótið fór fram hér í Þorlákshöfn í dag.  Um 220 krakkar úr 6. og 7. flokki beggja kynja mættu til leiks.  Leikgleðin var í fyrirrúmi og ljóst að allir voru ánægði með að komast út á grasið og keppa.

Eftir leiki fengu allir verðlaun og viðurkenningar frá Ölgerðinni sem er aðal styrktaraðili mótsins.  Dagurinn endaði svo í grilli og ís.