Ungir leikmenn skrifa undir hjá Ægi – myndir

18. des 2014

| Garðar

Ungir leikmenn skrifa undir hjá Ægi – myndir

20141217_181526 20141217_180655 20141217_180829 20141217_180929 20141217_181014 20141217_181308 20141217_181349Undirbúningur fyrir næsta tímabil er hafinn hjá Ægi í Þorlákshöfn. Hluti af undirbúningnum er að semja við unga og efnilega leikmenn. Markmiðið er alltaf að reyna auka hlutfall uppalinna leikmanna í hópi meistaraflokks.

Í gær 17.desember 2014 skrifuðu 3 ungir leikmenn undir tveggja ára samning við félagið. Þetta eru allt uppaldir leikmenn Ægis sem félagið bindur miklar væntingar og vonir við að verði framtíðar leikmenn meistaraflokks á næstu árum. Þetta eru góðar fréttir fyrir félagið og gæfuspor.

Þessir leikmenn heita: Atli Rafn Guðbjartsson f.´98, Ómar Örn Reynisson f.´96 og Pétur Smári Sigurðsson f.´98. Knattspyrnufélagið Ægir fagnar því að hafa náð samningum við þessa efnilegu drengi og hlakkar til samstarfsins á næstu árum.

Atli og Pétur léku með 3. flokki Ægis/Hamars/Selfoss á síðasta tímabili og hafa æft hjá félaginu upp alla yngri flokka.  Ómar lék með 2. flokki Ægis/Selfoss á síðasta tímabili en hann hefur bæði spilað með Ægi megnið af sínum knattspyrnuferli auk þess að spila með Selfoss.

Þjálfari meistaraflokks Ægis er sem fyrr Alfreð Elías Jóhannsson, en hann tók við liðinu haustið 2010. Félagið hefur einnig náð samkomulagi við Milos Glogovac sem mun áfram sinna starfi aðstoðarþjálfara sem og að leika með liðinu á næsta tímabili.