Knattspyrnufélagið Ægir

Ægir Þorlákshöfn

Ægir Þorlákshöfn

Knattspyrnufélagið Ægir stendur fyrir öflugu og markvissu knattspyrnustarfi í Þorlákshöfn. Félagið heldur úti starfsemi í öllum aldursflokkum, frá yngstu iðkendum í knattspyrnuskóla eða frá 8. flokki og upp í meistaraflokk. Börn geta hafið þátttöku frá fjögurra ára aldri og er markmið Ægis að styðja við samfellt íþróttastarf frá fyrstu skrefum og allt upp á afreksstig.

Ægir leggur ríka áherslu á faglegt barna- og unglingastarf enda er það undirstaða alls félagsstarfsins. Jafnframt er lögð áhersla á rekstur öflugra meistaraflokka þegar aðstæður og efni leyfa. Æskulýðsstarf og afreksstarf eru órjúfanlegir þættir í starfsemi félagsins, yngri flokkarnir sækja fyrirmyndir í meistaraflokkana og meistaraflokkarnir byggja styrk sinn á öflugu uppbyggingarstarfi í yngri flokkum. Hvorugt getur staðið eitt og sér og saman mynda þau heildstæða og sjálfbæra starfsemi.

 

Saga félagsins

Knattspyrnustarf í Þorlákshöfn var lengi vel rekið sem hluti af Ungmennafélaginu Þór, sem stofnað var um 1960. Undir merkjum Þórs var keppt í knattspyrnu frá upphafi skipulags keppnishalds og fram á níunda áratuginn.

Á seinni hluta níunda áratugarins vaknaði aukinn áhugi á sameiginlegu knattspyrnusamstarfi strandbæjanna Þorlákshafnar, Eyrarbakka og Stokkseyrar. Um mitt ár 1987 hittust fulltrúar frá þessum stöðum með það að markmiði að kanna möguleika á stofnun sérstaks knattspyrnufélags, þar sem knattspyrna á svæðinu hafði átt undir högg að sækja. Ákveðið var að halda málinu áfram og stefna að stofnfundi um haustið. Sú vinna skilaði árangri og Knattspyrnufélagið Ægir var stofnað 6. desember 1987.

Árið 1988 tók Ægir í fyrsta sinn þátt í Íslandsmóti með lið í meistaraflokki karla sem þá lék í 4. deild og endaði í 7. sæti.

Að stofnun félagsins komu:

  • Magnús Skúlason og Jón Eiríksson frá Eyrarbakka,
  • Jóhann Þórðarson, Marteinn Arilíusson og Óskar Arilíusson frá Stokkseyri,
  • Ellert Hreinsson, Jóhannes Guðmundsson og Ármann Sigurðsson frá Þorlákshöfn.

 

Stokkseyringar drógu sig úr samstarfinu ári síðar. Samstarfið milli bæjanna gekk vel um tíma en eftir að Eyrarbakki varð hluti af sveitarfélaginu Árborg árið 1998 dró smám saman úr starfsemi þar. Síðan þá hefur félagið alfarið verið rekið af Þorlákshafnarbúum.

Í upphafi var áhersla fyrst og fremst lögð á rekstur meistaraflokks karla. Það breyttist fljótt, því árin 1991 og 1992 lék meistaraflokkur kvenna undir merkjum Ægis í annarri deild Íslandsmótsins. Starfsemi yngri flokka hófst árið 1992 og hefur síðan verið einn af burðarásum félagsins. Fyrstu árin var starfið leitt af miklum metnaði undir stjórn Hólmars Sigþórssonar og Garðars Geirfinnssonar.

Kvennaknattspyrna hófst á ný árið 1999 og voru lið í nánast öllum flokkum Íslandsmótsins. Ásdís Viðarsdóttir og Garðar Geirfinnsson stýrðu því starfi af festu og fagmennsku.

Árið 2000 fór Ægir í samstarf við Hamar og kepptu félögin það ár undir nafninu Hamar/Ægir í meistaraflokki og 2. flokki karla. Eftir tímabilið var ákveðið að ljúka samstarfinu. Samstarf við Hamar hófst þó aftur árið 2007 í yngri flokkum og hefur verið með einhverjum hætti nær samfellt síðan þá. Einnig var samstarf við Selfoss í eldri unglingaflokkum til að tryggja þátttöku í 11 manna knattspyrnu. Árið 2025 er samstarf Hamar og Ægis enn í gildi í yngri flokkum en Selfoss hefur dregið sig út vegna breyttra forsendna.

 

Árangur meistaraflokks karla

Ægir hefur alla tíð lagt metnað í að halda úti liðum í flestum flokkum í keppnum á vegum KSÍ og í héraðsmótum. Helstu afreksárangrar meistaraflokks karla eru meðal annars eftirfarandi:

    • Árið 1991 hafnaði liðið í 2. sæti 4. deildar og lék í 3. deild árið 1992.
    • Árið 1994 vann Ægir 4. deild eftir afar dramatískan sigurleik gegn Hetti á Egilsstöðum.
    • Árið 2009 komst liðið í úrslitakeppni 3. deildar, en laut í lægra haldi fyrir Völsungi.
    • Árið 2012 tryggði liðið sér sæti í 2. deild eftir sigur gegn Magna í undanúrslitum, undir stjórn Alfreðs Elíasar Jóhannssonar.
    • Ægir lék í 2. deild árin 2013–2016, en féll naumlega árið 2016.
    • Árin 2019–2021 var markvisst enduruppbyggingarstarf unnið undir stjórn Nenad Zivanovic.
    • Árið 2022 endaði Ægir í 3. sæti 2. deildar og náði jafnframt í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins.
    • Árið 2023 lék liðið í Lengjudeild, næst efstu deild, en féll aftur í 2. deild.
    • Árið 2025 varð Ægir deildarmeistari 2. deildar eftir dramatískan 3–1 sigur gegn Víði í Garði í lokaleik tímabilsins og tryggði sér sæti í Lengjudeild 2026.
Formenn félagsins
    1. Magnús Skúlason (1987–1989)
    2. Grétar Pétur Geirsson (1990–1991)
    3. Þórður Eiríksson (1992)
    4. Jón Bjarni Stefánsson (1993–1994)
    5. Helgi Ingvarsson (1995)
    6. Guðmundur Magnússon (1996)
    7. Þórður Eiríksson (1997–2000)
    8. Þorvaldur Garðarsson (2001–2002)
    9. Sveinn Jónsson (2003–2006)
    10. Guðbjartur Örn Einarsson (2006– )
Þjálfarar meistaraflokks
  1. André Raes (Hætti á miðju tímabili 1988)
  2. Gylfi Þ. Gíslason (Tekur við af André 1988)
  3. Daníel Gunnarsson (1989–1991)
  4. Magni Blöndal Pétursson (1992)
  5. Magnús Pálsson (1993–1994)
  6. Guðmundur Valur Sigurðsson (1995)
  7. Þorlákur Árnason (1996)
  8. Ólafur Geir Magnússon (1997–1999)
  9. Einar Jónsson (2000–2002)
  10. Garðar Geirfinnsson (2003–2004)
  11. Sigurður B. Jónsson (2005)
  12. Páll Guðmundsson (2006)
  13. Sveinbjörn Ásgrímsson (2007–2010)
  14. Alfreð Elías Jóhannsson (2011–2015)
  15. Einar Ottó Antonsson (2016)
  16. Björgvin Freyr Vilhjálmsson (2017)
  17. Sveinbjörn Ásgrímsson (2018)
  18. Nenad Zivanovic (2019–)
1987
1987

Knattspyrnufélagið Ægir stofnað þann 6. desember 1987

  • Magnús Skúlason verður fyrsti formaður
1988
1988

Fyrsta keppnistímabilið 1988

  • Fyrsta keppnistímabil félagsins
  • Lentu í 7. sæti
  • Meistaraflokkur karla keppir í 4. deild
  • André Raes  er fyrsti þjálfari liðsins
  • Gylfi Þ. Gíslason verður þjálfari á miðju tímabili
1989
1989

Nýr þjálfari 1989

  • Daníel Gunnarsson tekur við sem þjálfari
1990
1990

Nýr formaður 1990

  • Grétar Pétur Geirsson verður formaður
1991
1991

Upp um deild 1991

  • Meistaraflokkur karla endar í 2. sæti 4. deildar
  • Tryggir sæti í 3. deild 1992
1992
1992

Mikil uppbygging 1992

  • Þórður Eiríksson verður formaður
  • Magni Blöndal Pétursson tekur við sem þjálfari
  • Starfsemi yngri flokka hefst
  • Meistaraflokkur kvenna keppir í 2. deild
  • Meistaraflokkur karla keppir í 3. deild og falla aftur um haustið
1993
1993

Breytingar 1993

  • Jón Bjarni Stefánsson verður formaður
  • Magnús Pálsson tekur við sem þjálfari
1994
1994

Sigur í 4.deild 1994

  • Ægir vinnur 4. deild eftir dramatískan sigur gegn Hetti á Egilsstöðum
1995
1995

Spila í 3. deild 1995

  • Helgi Ingvarsson verður formaður
  • Guðmundur Valur Sigurðsson tekur við sem þjálfari
1996
1996

Breytingar 1996

  • Guðmundur Magnússon verður formaður
  • Þorlákur Árnason tekur við sem þjálfari
1997
1997

Breytingar 1997

  • Þórður Eiríksson verður formaður (á ný)
  • Ólafur Geir Magnússon tekur við sem þjálfari
1999
1999

Kvennaknattspyrna hefst á ný 1999

  • Kvennaknattspyrna hefst á ný
  • Lið í nánast öllum flokkum Íslandsmóts
2000
2000

Samstarf við Hamar hefst 2000

  • Samstarf við Hamar hefst (Hamar/Ægir)
  • Einar Jónsson tekur við sem þjálfari
2001
2001

Nýr formaður 2001

  • Þorvaldur Garðarsson verður formaður
2003
2003

Breytingar 2003

  • Sveinn Jónsson verður formaður
  • Garðar Geirfinnsson tekur við sem þjálfari
2005
2005

Nýr þjálfari 2005

  • Sigurður B. Jónsson tekur við sem þjálfari
2006
2006

Breytingar 2006

  • Guðbjartur Örn Einarsson verður formaður
  • Páll Guðmundsson tekur við sem þjálfari
2007
2007

Samstarf við Hamar hefst á ný 2007

  • Samstarf við Hamar hefst á ný í yngri flokkum
  • Sveinbjörn Ásgrímsson tekur við sem þjálfari
2009
2009

Nálægt því að fara upp 2009

  • Ægir kemst í úrslitakeppni 3. deildar og tapar fyrir Völsungi
2011
2011

Nýr þjálfari 2011

  • Alfreð Elías Jóhannsson tekur við sem þjálfari
2012
2012

Upp um deild 2012

  • Ægir tryggir sér sæti í 2. deild
  • Sigrar Magna í undanúrslitum
2013
2013

Fyrsta sinn í 2. deild 2013

  • Ægir leikur í 2. deild
2016
2016

Naumt fall 2016

  • Ægir leikur í 2. deild fjögur ár í röð
  • Fellur naumlega á markamun 2016
  • Afreð hættir sem þjáfari eftir sex ár hjá félaginu.
2017
2017

Nýr þjálfari 2017

  • Ægir leikur í 3. deild
  • Björgvin Freyr Vilhjálmsson tekur við sem þjálfari
2018
2018

Nýr þjálfari 2018

  • Ægir fellur í 4. deild
  • Sveinbjörn Ásgrímsson tekur aftur við sem þjálfari
2019
2019

Nýr þjálfari 2019

  • Enduruppbygging hefst
  • Nenad Zivanovic ráðinn aðalþjálfari
  • Ægir leikur í 4. deild
2020
2020

Upp um deild 2020

  • Ægir verður deildarmeistari 4. deildar
  • Tryggt sæti í 3. deild
2021
2021

Upp um deild 2021

  • Ægir tryggir sér sæti í 2. deild
2022
2022

3. sæti 2.deildar 2022

  • Ægir endar í 3. sæti 2. deildar
  • Nær í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins
  • Er úthlutað sæti í 1. deild eftir að Kórdrengir duttu úr lestinni.
2023
2023

Lengjudeildin 2023

  • Ægir leikur í Lengjudeild (næst efsta deild)
  • Fellur aftur í 2. deild
2024
2024

Lengjudeildin 2024

  • Erfitt tímabil í 2. deild
  • Tryggir áframhaldandi sæti
2025
2025

Aftur upp 2025

  • Ægir verður deildarmeistari 2. deildar
  • Sigrar Víði 3–2 í lokaleik í Garði með marki á 97 mínútu
  • Tryggir sæti í Lengjudeild 2026
  • Nenad framlengir út árið 2026 og er sá þjálfari sem lengst hefur starfað fyrir meistaraflokk Ægis.  
2026
2026

Lengjudeildin 2026

  • Ægir spilar í Lengjudeildinni