U 16 landsliðúrtak…..

7. jan 2009

| umsjon

U 16 landsliðúrtak…..

Pálmi Þór Ásbergsson hefur verið valinn til æfinga með úrtakshópi fyrir U 16 landslið á vegum KSÍ. Þetta eru skemmtilegar fréttir fyrir félagið okkar sem og hann Pálma. Þetta er annar leikmaður sem fer frá okkar félagi á stuttum tíma til æfinga með úrtakshópi á vegum KSÍ.
Við óskum Pálma innilega til hamingju með áfangann og vitum að þessi áskorun á eftir að efla hann enn frekar.

Áfram Ægir.


Image URL: /aegirfc/upload/images/4. karla gegn Val/DSC_0631_thumb.JPG