Tilkynning frá Ægi

11. nóv 2011

| umsjon

Tilkynning frá Ægi

Knattspyrnufélagið Ægir og Knattspyrnudeild Selfoss hafa tekið upp samstarf í 3 og 4 flokk karla. Samstarfið felst aðallega í því að keppa saman í Faxaflóamóti KSÍ sem fer fram frá nóvember 2011 til apríl 2012. Eitthvað verður æft saman með Selfoss þegar það á við og hægt er, að öðru leyti verður æfingaplanið samkvæmt áætlun. Þetta verður þá ákveðinn prófsteinn á framhaldið, þ.e. hvort við getum gert þetta líka í íslandsmótinu og jafnvel fyrir fleiri flokka. Það er líka á planinu að fara í spilasamstarf við Hamar í Hveragerði í 5.flokk karla næsta sumar.

Ástæða þess að við gerum þetta er að við erum sífellt í vandræðum með okkar árganga sem eru misstórir sem gerir það að verkum að erfitt er að halda út i liðum í keppni nema að við séum í samstarfi við aðra. Við höfum gert þetta undanfarin ár og verið í samstarfi við öll okkar nágrannasveitarfélög í gegnum tíðina í yngri flokkum.

Við bindum vonir til þess að þetta samstarf sem nú þegar er hafið með Selfoss muni ganga vel og okkur sýnist þetta fara ágætlega af stað.

Bestu kveðjur, Stjórn og þjálfarar Ægis