Kæru íbúar Ölfuss
Ungmennafélagið Þór og Knattspyrnufélagið Ægir hafa komist að samkomulagi um sameiginlegan jakka / hettupeysu fyrir allar deildir félaganna. Jakkinn er svartur í grunninn með hvítum og gráum röndum og svartar buxur, val er um buxnagerð.
Búningurinn verður merktur félagsmerkjum beggja félaga fyrir alla yngri flokka þar sem margir iðkendur stunda margar íþróttagreinar. Þó skal tekið fram að það er alltaf val hvers og eins ef viðkomandi vill sleppa öðru hvoru félagsmerkinu. Nafnamerking iðkanada mun kosta aukalega 300 kr/stk. Lógó Sveitarfélagsins Ölfuss verður samt alltaf á jakkanum svo það sé skýrt hvaðan við erum, sett neðst á bakið.
Náðst hefur samkomulag við Jakosport á Íslandi um sölu á búningnum en einnig er hægt að kaupa ýmsar aðrar íþróttavörur eins og boli, ræktarföt, töskur o.fl.
Jakosport mun sjá um kynningu á íþróttabúningnum og öðrum vörum í íþróttamiðstöðinni á miðvikudag 21.október frá 17:00-19:00. En þá er hægt að máta og skrá niður pantanir.
Stjórn Þórs og Ægir.
