Meistaraflokkur karla lék sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu í gær. Mótherjinn var KFS og fór leikurinn fram í Vestmannaeyjum.
Ægismenn lentu snemma undir en komust síðan í 1:3 með mörkum frá Vincent, Eyþóri og Milan og voru talsvert betri aðilinn í leiknum. Með þessa forustu fengu síðan okkar menn fjölda færa til að ganga frá leiknum en náðu ekki að pota boltanum yfir línun. Gegn gangi leiksins minkuðu heimamenn síðan muninn og staðan 2:3 í hálfleik.
Í síðar hálfleik voru Ægismenn áfram meira með boltann en í staðin fyrir að bæta gefum við KFS mark á silfurfati og staðan 3:3. Eftir þetta sækja heimamenn í sig veðrið og komast í 5:3 en það var síðan Matti sem minkaði muninn og niðurstaðan 5:4 fyrir KFS.
Næsti leikur meistaraflokks er föstudaginn 27. maí gegn KFR og er það fyrsti heimaleiku liðsins.
Tap í markaleik hjá meistaraflokk
22. maí 2011
| umsjon