Tap í fyrsta æfingaleik meistaraflokks – leikur nr. 2 í kvöld

21. nóv 2012

| Garðar

Tap í fyrsta æfingaleik meistaraflokks – leikur nr. 2 í kvöld

Meistaraflokkur karla lék á laugardaginn sinn fyrsta æfingaleik á þessu tímabili.  Mótherjinn var Grótta og lauk leiknum með sigri þeirra 2:0.  Alfreð þjálfari var að prófa marga nýja leikmenn og einnig fengu okkar yngri strákar að spila talsvert.  Í heildina var Alli sáttur við leikinn.

Liðið leikur í kvöld gegn HK og hefst leikurinn kl. 18:30 í Kórnum.