Meistaraflokkur karla lék æfingaleik gegn ÍR á laugardaginn. Leiknum lauk með sigri ÍR 2:1. Þrátt fyrir tapið var leikurinn ágætlega leikinn af okkar hálfu og margir ljósir punktar. Að venju spiluðu peyjarnir okkar úr 2. og 3. flokk talsvert og hafa staðið sig með mikilli prýði.
4. flokkur kvenna lék einnig á laugardag. Spilað var gegn Snæfellsnesi á Selfossi. Leiknum lauk með 0:1 tapi en stelpurnar hefur hæglega getað fengið meira út úr leiknum.