Tap hjá meistaraflokk karla gegn Berserkjum – myndir

13. jún 2008

| umsjon

Tap hjá meistaraflokk karla gegn Berserkjum – myndir

Meistaraflokkur karla lék í kvöld gegn Berserkjum og fór leikurinn fram í Egilshöll.  Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en heimamenn þó heldur ákveðnari,  bæði lið sköpuðu sér nokkur færi sem þeim tókst þó ekki að nýta sér.  Undir lok hálfleiksins fengur Berserkir síðan vítaspyrnu en Sigmar varði hana glæsilega.
Síðari hálfleikur fór ekki nógu vel af stað fyrir okkar menn því Berserkir náðu að komast í 2:0 með mörkum á 60. og 65. mínútu.  Á 76. mínútu misstum við síðan Albert útaf með sitt annað gula spjald en þá tók liðið við sér og hafði nokkra yfirburði undir lok leiksins.  Danislav skoraði mark úr víti sem við fengum á 79. mínútu en fleiri urðu mörkin ekki og lauk leiknum því með sigri Berserkja 2:1.
Næsti leikur meistaraflokks er nágranna slagur gegn Árborg og fer hann fram laugardaginn 21. júní á Þorlákshafnarvelli.

Nokkrar myndir úr leiknum í dag eru nú komnar inná myndavefinn.


Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. gegn Berserkjum/DSC_0112_thumb.JPG