Meistaraflokkur karla tapaði sínum fyrsta leik síðan í annari umferð í gærkvöldi þegar liðið lék gegn Hamri í Hveragerði. Ægismenn voru heldur sterkari í fyrri hálfleik en náðu ekki að nýta færi sín. Það voru hins vegar heimamenn sem skoruðu eina markið í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik var jafnræði með liðunum en sem fyrr náðu okkar menn ekki að skora en Hamarsmenn bættu við þremur mörkum. Niðurstaðan sem sagt 4:0 sigur Hamars.
Tap hjá meistaraflokk í Hveragerði
1. ágú 2007
| umsjon