Tap hjá meistaraflokk gegn toppliði Berserkja

17. júl 2008

| umsjon

Tap hjá meistaraflokk gegn toppliði Berserkja

Meistaraflokkur karla lék í kvöld gegn Berserkjum og fór leikurinn fram á Þorlákshafnarvelli.  Fyrir leikinn voru gestirnir á toppi riðilsins en okkar menn í harðri baráttu um annað sætið.
Leikurinn byrjaði ekki vel því gestirnir settu mark strax á 3. mín.  Eftir markið hresstust okkar menn og sóttu nokkuð stíft.  Uppskeran voru nokkur góð færi og amk. tvö dauðafæri en inn vildi boltinn ekki.  Gestirnir bættu hins vegar við marki á 33. mín og staðan í hálfleik 0:2. 
Mikil barátta einkenni síðarihálfleik og náðu bæði lið að ógna markinu talsvert en það var ekki fyrr en á 81. mín sem við náðum að minnka muninn með marki frá Atla.  Okkar menn sóttu stíft síðustu mínúturnar og freistuðu þess að jafna en það voru gestirnir sem bættu við þriðja markinu á 90. mín og lauk því leiknum með sigri þeirra 1:3.

Næsti leikur meistaraflokks er útileikur gegn Árborg fimmtudaginn 24. júlí.


Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/DSC_0115_thumb.JPG