4. flokkur karla lék sinn fyrsta leik á faxaflóamótinu síðastliðin sunnudag. Strákarnir léku gegn Breiðablik 2 og fór leikurinn fram í Kópavogi. Leiknum lauk með sigri heimamanna 5:1 og var Ásgeir þjálfari allt annað en ánægður með úrslitin. Talsvert vantaði í lið okkar en einnig virtust leikmenn ekki mæta með rétt hugarfar í leikinn eftir gott gengi á HSK mótinu um daginn.
Næsti leikur hjá strákunum er 10. nóvember gegn Álftanesi.
Tap hjá 4. karla í fyrsta leik
31. okt 2007
| umsjon