Tap hjá 4. karla í 7 manna boltanum

1. júl 2008

| umsjon

Tap hjá 4. karla í 7 manna boltanum

7 manna lið 4. flokks karla spilaði í dag gegn Keflavík á Íslandsmótinu.  Leikið var á Þorlákshafnarvelli.  Leikurinn var jafn og spennandi þó okkar strákar hafi heldur haft undirtökin.  Þeir byrjuðu vel og komust í 1:0 en í kjölfarið fylgdu tvö mörk frá gestunum og staðan í hálfleik 1:2.  Í síðari hálfleik höfðu okkar menn nokkra yfirburði en það dugði ekki til að skora mark og í staðin bætti Keflavík við einu marki og lauk leiknum því með sigri þeirra 1:3.

Næsti leikur 7 manna liðsins er laugardaginn 5. júlí gegn Gnúpverjum á Þorlákshafnarvelli.  Leikurinn hefst kl. 12:00.