Tap gegn Reyni

6. jún 2013

| Garðar

Tap gegn Reyni

picture110Meistaraflokkur mætti Reyni suður með sjó í kvöld.  Eftir góðan sigur gegn Hamri í síðustu umferð voru menn vongóðir um hagstæð úrslit í Sandgerði en sú varð ekki niðurstaðan. Reynismenn unnu 2:1 sigur eftir að hafa komist í 2:0 en það var Matti sem skoraði mark Ægis á 91. mínútu. Eftir leikinn eru okkar menn sem fyrr með 6 stig en nú í 7. sæti.  Næsti leikur liðsins er eftir rúma viku þegar Dalvík/Reynir kemur í heimsókn sunnudaginn 16. júní.