Tap gegn HK í kaflaskiptum leik

2. júl 2013

| Garðar

Tap gegn HK í kaflaskiptum leik

Meistaraflokkur mætti HK á Kópavogsvelli í kvöld.  Okkar menn máttu þola 2:0 tap en HK settist á toppinn með sigrinum.

Heimamenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og settu tvö ódýr mörk á 21. og 38. mínútu þar sem vörnin var ekki nægilega með á nótunum.

Í síðar hálfleik gerði Alli breytingar á vörn Ægis og það virtist gefa góða raun því liðið var að spila talsvert betur.  Nokkur færi litu dagsins ljós en alltaf vantaði herslu muninn til að setja boltann inn.

Niðurstaðan því 2:0 tap gegn sterku liði HK.  En það er stutt í næsta leik því strákarnir sækja Njarðvík heim á föstudagskvöldið.WP_20130627_001