Meistaraflokkur lék gegn Dalvík/Reyni í á Dalvík í dag. Samkvæmt heimildum fréttaritara var leikurinn jafn og einkenndist af baráttu beggja liða. Lítið var um opin færi enda varnarleikurinn þéttur báðu megin. Eina mark leiksins skoruðu heimamenn á 50. mínútu en það hefði aldrei átt að standa því í aðdraganda þess slær leikmaður Dalvík/Reynis leikmann Ægis (Eyþór Smára) og því klárt leikbrot. Dómarinn sá hins vegar ekki brotið og því stóð markið, ansi hart.
Niðurstaðan varð því 1:0 tap fyrir norðan. Okkar menn sitja því í 10. sæti með 17 stig, 7 stigum á undan liðunum í fallsætunum. Næsti leikur Ægis er næstkomandi laugardag gegn Sindra á Þorlákshafnarvelli.