Svekkjandi tap gegn toppliði Gróttu

5. jún 2014

| Garðar

Svekkjandi tap gegn toppliði Gróttu

WP_20140425_003Ægismenn fengu Gróttu í heimsókn á Þorlákshafnarvöll í kvöld.  Leikið var í blíðskaparveðri við frábærar aðstæður.

Fyrri hálfleikur var jafn og skiptust liðin á að halda boltanum, lítið náðu þau þó að skapa sér af færum.  Er leið á hálfleikinn voru gestirnir heldur sterkari en fá alvöru færi litu dagsins ljós.  En stuttu fyrir hálfleik komst Grótta yfir eftir hornspyrnu þar sem boltinn fékk að fara óáreittur í gegnum teiginn án þess að nokkur gerði tilraun til að koma honum frá.  Matthew var þó grátlega nálægt því  að ná boltanum en staðan í hálfleik 0:1.

Í síðari hálfleik hresstust Ægismenn og voru sterkari aðili leiksins.  En eins og í fyrri hálfleik létu færin á sér standa.  Nokkur góð hálffæri kveiktu þó von hjá áhorfendum og oft vantaði bara herslu muninn að okkar menn næðu að koma bolta í markið.  En inn vildi boltinn ekki og niðurstaðan því 0:1 tap.

Það má sjá batamerki á leik Ægis bæði í vörn og sókn, og er það jákvætt.  Næsti leikur liðsins er útileikur gegn KF næstkomandi föstudag.