Á morgun byrjar formlega sumardagskrá hjá Ægi. Morgunæfingar hefjast hjá 5. flokk og 6. og 7. flokkur byrja í knattspyrnuskólanum sem er á morgnana frá 10:00 – 12:00. Einnig byrjar Gyða Steina með útiæfingar fyrir 8. flokk en þær verða á mánudögum og miðvikudögum frá 16:00 – 17:00. Síðan byrjar hið sívinsæla leikjanámskeið Ægis en það er frá 13:00 – 15:00 mánudaga til fimmtudaga, umsjón með námskeiðinu hefur Hófí. Æfingar 4. flokks karla og kvenna og 3. flokks karla eru síðan seinni partinn.
Sumardagskrá hefst á morgun
10. jún 2012
| umsjon