Sumardagskaffi Ægis

18. apr 2012

| umsjon

Sumardagskaffi Ægis

Hið árlega sumardagskaffi Ægis verður haldið á morgun, sumardaginn fyrsta (19. apríl) í Versölum.  Um hefðbundið kaffihlaðborð er að ræða sem foreldrar iðkenda hafa galdrað fram…….og því öruggt að nóg verður af kræsingum.  Einnig verða skemmtiatriði, tískusýning og tónlistaratriði.

Verð fyrir fullorðna er 1.200 kr. og 600 fyrir 6 – 12 ára.  Yngri en 6 fá frítt.

Nú er bara að mæta, fagna sumri og styðja um leið yngriflokka starf félagsins.