Sumarblaðið komið út – sumardagskrá hefst formlega 10. júní

2. jún 2013

| Garðar

Sumarblaðið komið út – sumardagskrá hefst formlega 10. júní

 

5. flokkur

5. flokkur

Sumarblaði Ægis hefur nú verið dreift á heimili í Þorlákshöfn.  Í blaðinu er að finna allar helstu upplýsingar varðandi starf félagsins í sumar.  Má þar nefna æfingatíma flokka, leikjanámskeið, knattspyrnuskóla, smíðavöll, helstu mót og fleira.

Sumardagskrá hefst formlega mánudaginn 10. júní en þá taka gildi þeir æfingatímar sem auglýstir eru sem og leikjanámskeið.