Suðurlandsslagur á Þorlákshafnarvelli á morgun

31. maí 2013

| Garðar

Suðurlandsslagur á Þorlákshafnarvelli á morgun

Stórleikur Ægis og Hamars fer fram á morgun laugardaginn 1. júní kl. 16:00 á Þorlákshafnarvelli.  Þetta er grannaslagur af bestu gerð og langt síðan liðin hafa mæst í deildarkeppni.  Bæði lið eru með þrjú stig eftir  þrjá leiki og sigur á morgun því mikilvægur fyrir okkar menn.  Nú fjölmenna allir á Þorlákshafnarvöll á morgun og styðja strákana til sigurs.

Áfram  Ægir

Alli og Júlli eru klárir fyrir leikinn á morgun

Alli og Júlli eru klárir fyrir leikinn á morgun