Strákarnir klárir í slaginn

11. sep 2012

| Garðar

Strákarnir klárir í slaginn

Strákarnir í meistaraflokk slökuðu á í pottinum eftir létta æfingu í kvöld.  Á morgun kl. 16:00 er stærsti leikur félagsins í mörg ár þegar liðið mætir Magna í undanúrslitum 3. deildar.  Fyrri leikurinn á Grenivík lauk með 3:1 sigri okkar manna.  Við erum því í ansi góðri stöðu en ekki má vanmeta andstæðinginn sem vann sinn riðil í sumar.

Að sjálfsögðu stefnir liðið á að klára með stæl og vinna leikinn á morgun og tryggja sé þannig sæti í 2. deild að ári.