Stórt tap hjá meistaraflokk

24. mar 2013

| Garðar

Stórt tap hjá meistaraflokk

Meistaraflokkur karla lék gegn KV í Lengjubikarnum í gær.  Ánægjulegt var að sjá hversu margir uppaldir Ægisstrákar voru í leikmannahóp liðsins en meðal annars má nefna að Pálmi Þór Ásbergsson er komin aftur í klúbbinn á láni frá Selfossi og hinn 15 ára Axel Örn Sæmundsson stóð allan tímann í markinu.

Ekkert útlit var fyrir slæm úrslit framan af leik þó KV væru heldur sterkari aðilinn. Ægir komst betur inní leikinn þegar leið að hálfleik og útlitið því ekki slæmt.

Á 30 mín. kafla í síðari hálfleik skoruðu KV 6 mörk og úrslit leiksins því stórt tap 6:0.  En nú er bara að spýta í lófana og læra af því sem miður fór.

Næsti leikur liðsins í Lengjubikarnum er gegn ÍR og fer hann fram föstudaginn 5. apríl kl. 20:00 á Hertz-vellinum.

Lið Ægis eftir leik gegn Árborg

Lið Ægis eftir leik gegn Árborg