Stórsigur hjá Oldboys

19. maí 2011

| umsjon

Stórsigur hjá Oldboys

Oldboys lið Ægis gerði góða ferð í Kópavog í gærkvöldi er þeir mættu liði HK.  Það er skemmst frá að segja að liðið vann stórsigur 2:6.
Útlitið var heldur betur gott í hálfleik en þá var liðið með 0:3 forustu.  HK náðu hins vega að laga stöðuna í 2:3 og virtist þróun síðasta leiks ætla að endurtaka sig.  En Ægismenn gáfu bara í og bættu við þremur mörkum og uppskáru góðan sigur.

Markaskorarar Ægis í gær voru Össi (2), Markús, Þráinn, Dóri og Sveinki.


Image URL: /upload/images/Oldboys 2011/CIMG1905 (800×600)_thumb.jpg