Meistaraflokkur karla lék í kvöld gegn KFR á Íslandsmótinu. Þetta var fyrsti leikurinn í annari umferð mótsins.
Fyrri hálfleikur einkenndist af mikilli baráttu og var nokkuð jafnræði með liðunum. Okkar menn náðu þó að fyrsta markið en þar var Atli að verki á 3. mín. Gestirnir jöfnuðu fljótlega en Gunnar koma Ægi aftur yfir á 31. mín. og staðan í hálfleik 2:1.
Í síðari hálfleik höfðu Ægismenn talsverða yfirburði. Eftir að Milos hafði komið okkur í 3:1 með marki úr víti á 47. mín. var nánast eitt lið á vellinum en næsta mark kom þó ekki fyrr en á 74. mín. þegar Danislav skorði laglegt merk eftir að vera ný komin inná. Í kjölfarið fylgdu mörk frá Atla (83. mín.) og Davislav (85. mín). Atli náði síðan að fullkomna þrennuna með marki úr víti á 90. mín. og 7:1 stórsigur hjá okkar mönnum því staðreynd. Næsti leikur meistaraflokks er föstudaginn 4. júlí gegn KV á útivelli.
Nokkrar myndur frá leiknum í kvöld eru komnar á myndavefinn.
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. gegn KFR 27. júní/DSC_0403_thumb.JPG