Stórsigur hjá 4. flokki kvenna

27. apr 2008

| umsjon

Stórsigur hjá 4. flokki kvenna

4. flokkur kvenna lék gegn Grindavík í dag á Faxaflóamótinu og fór leikurinn fram í Grindavík.  Stúlkurnar okkar unnu stórsigur en leiknum lauk með sigri Ægis 2:7.  Okkar stúlkur höfðu mikla yfirburði í leiknum og hefði sigurinn hæglega geta orðið stærri.  Það voru Eva (3), Inga (2), Margrét og Guðlaug sem skoruðu mörk Ægis.  Glæsilegt stelpur.