Stórleikur í bikarnum í kvöld

16. maí 2012

| umsjon

Stórleikur í bikarnum í kvöld

Eftir frækinn sigur Ægismanna í fyrstu umferð bikarkeppni KSÍ er komið að fyrsta alvöru heimaleik liðsins á tímabilinu.

Það er 1. deildar lið Víkings Ólafsvík sem kemur í heimsókn á Þorlákshafnarvöll í kvöld.  Leikurinn hefst kl. 19:00.

Lið Ægis hefur styrkst svo um munar undanfarnar vikur og verður gaman að sjá hvernig þeir standa sig gegn sprækum Ólsurum.

Allir á völlinn   –   Áfram Ægir!