5. flokkur hélt í Hamarshöllina á föstudaginn og tók samæfingu með 5. flokki Hamars. Félögin eru í samstarfi með 5. flokk og tilvalið að taka æfingu saman í nýju glæsilegu Hamarshöllinni.
Það var stór hópur sem æfði saman, 26 strákar og því ljóst að félögin fara langt með að senda 4 lið á Íslandsmótið næsta sumar.