Knattspyrnunámskeið fyrir 16 – 11 ára stelpur hófst síðastliðinn miðvikudag. Það má með sanni segja að það hafi farið vel af stað en í fyrst tímann mættu tíu sprækar stelpur. Það er Guðlaug Arna Hannesdóttir sem sér um námskeiðið.
Námskeiðið stendur yfir í 6 vikur og öllum stelpum á þessum aldri er velkomið að vera með. Næsti tími er á morgun, mánudag klukkan 17:00 á gervigrasinu.
