Sprækar stelpur á Símamótinu

21. júl 2015

| Garðar

Sprækar stelpur á Símamótinu

6. og 7. flokkur Ægis tók þátt í Símamótinu síðustu helgi.  Símamótið er orðið stærsta yngriflokkamótið sem haldið er á sumrin með yfir 2.000 keppendur.  Við mættum með eitt lið í 6. flokki og tvö í 7. flokki í samstarfi við Hamar.

Stelpurnar fóru á kostum og um helgina innan sem utan vallar og skemmtu sér konunglega.  Gaman er að segja frá því að 6. flokkur kom heim með gullverðlaun og 7. flokkur með silfur.  Flottur árangur hjá þessum frísku stelpum.WP_20150719_007 WP_20150719_005 WP_20150719_003 WP_20150716_008 WP_20150717_005 WP_20150717_003 WP_20150719_001