Snæfellsnes of stór biti fyrir 5. flokk

14. jún 2012

| umsjon

Snæfellsnes of stór biti fyrir 5. flokk

5. flokkur karla lék gegn Snæfellsnesi á Þorlákshafnarvelli í dag. A liðið spilaði fyrst en ekki voru strákarnir nógu vel stemmdir í dag og mættu í raun aldrei til leiks.  Leiknum lauk með 2:14 sigri Snæfellsness sem voru ógnarsterkir.  B liðið átti betri dag og voru 1:0 yfir í hálfleik.  Í síðari hálfleik skoruðu gestirnir 5 mörk og lauk leiknum því með sigri Snæfellsness 1:5.  Fyrir þessa leiki höfðu liðin unnið alla sína leiki á mótinu.  Næstu leikir liðsins eru gegn Álftanesi næst komandi fimmtudag.