Skemmtileg ferð hjá 5. flokki á Ísafjörð

22. júl 2012

| Garðar

Skemmtileg ferð hjá 5. flokki á Ísafjörð

5. flokkur skellti sér til Ísafjarðar á föstudaginn en liðið átti tvo leiki við BÍ/Bolungarvík á laugardag.  14 leikmenn fóru í ferðina ásamt tveimur þjálfurum.  Hópurinn fékk gistingu í félagsmiðstöðinni á Bolungarvík og var mikið stuð þegar mætt var á staðinn um 22:00 á föstudagskvöld.

Á laugardeginum var leikið á Ísafirði.  A liðið lék fyrst og ekki voru menn alveg klárir í slaginn og staða 4:0 fyrir heimamenn þegar 10 mín. voru búnar af leiknum.  Eftir það fóru menn að sína sitt rétta andlit og voru betri aðilinn í síðari hálfleik en það dugði ekki til og 5:2 tap var niðurstaðan.  B liðið átti talsvert betri dag og vann sannfærandi 5:1 sigur en þó eftir að hafa lent 0:1 undir.

Eftir leikina var brunað af stað heim með viðkomu á Hólmavík þar sem menn gæddu sér á burger og tilheyrandi.  Hópurinn var til mikillar fyrirmyndar í ferðinni og stóð sig vel innan vallar sem utan.