Sigur og tap hjá Ægi í dag

10. júl 2008

| umsjon

Sigur og tap hjá Ægi í dag

Tveir leikir voru á dagskrá hjá Ægi í Íslandsmótunum í dag.  4. flokkur kvenna lék gegn Leikni í Breiðholtinu og töpuðu stúlkurnar 4:2.  Þær voru hins vegar að standa sig nokkuð vel í fjarveru nokkura lykilmanna.  Það var Inga sem skoraði bæði mörk Ægis.
4. flokkur karla 7 manna lið lék gegn Stokkseyri á útivelli og unnu strákarnir 7:1.  Sigurinn hefði hæglega getað orðið stærri en lukkudísirnar voru ekki með okkar mönnum uppvið markið.

11 manna lið 4. flokks karla leikur gegn KFR á Þorlákshafnarvelli á morgun og hefst leikurinn kl. 17:00.