A og B lið 5. flokks karla lék í dag gegn Hamri og fóru leikirnir fram í Hveragerði. A liðið lék fyrri leikinn og höfðu nokkra yfirburði í leiknum. Eyþór náði forustu fyrir Ægi snemma í leiknum en heimamenn náðu að jafna gegn gangi leiksins. Eftir það sóttu okkar strákar án afláts en inn vildi boltinn ekki. Það var ekki fyrr en á síðustu andartökum leiksins að Eyþór skoraði sigurmarkið beint úr horni og 1:2 sigur okkar stráka staðreynd.
B liðið lék einni leikinn. Hamar komst yfir fljótlega í leiknum en eftir það átti Ægir nokkur góð færi en náðu ekki að jafna. Eftir að hafa lagt alla áherslu á að jafna gáfu okkar strákar aðeins eftir í lokinn og heimamenn bættu við þremur mörkum. Leiknum lauk því með 4:0 sigri Hamars.
Næstu leikir 5. flokks eru miðvikudaginn 11. júní gegn Skallagrím og fara þeir fram hér í Þorlákshöfn.
Image URL: /aegirfc/upload/images/5. flokkur karla/5. karla gegn Hamri_thumb.jpg