5. flokkur karla lék í dag gegn Álftanesi á faxaflóamótinu og fór leikurinn fram hér í Þorlákshöfn. A liðið lék fyrst og hafði sigur 4:3 í baráttuleik. Mörk Ægis skoruðu Eyþór, Arnar, Jón Jökull og Ómar. B liðið spilaði seinni leikinn og töpuðu 1:5. Það var Bo Jo sem skorðaði fyrir Ægi.
Strákarnir spila aftur á morgun í faxaflóamótinu gegn Snæfellsnesi og er leikið hér í Þorlákshöfn.
Sigur og tap hjá 5. flokki í rjómablíðu
27. apr 2008
| umsjon