4. flokkur karla lék gegn Haukum í Hafnarfirði á sunnudaginn. Haukar eru með öflug lið en okkar strákar spiluðu fínan fótbolta og fengu jafna og spennandi leiki.
A-liðið tapaði 3:5 í miklum markaleik þar sem vantaði örlítið meiri skynsemi til að ná betri úrslitum. B-liðið vann góðan 4:3 sigur þar sem liðið skoraði sigurmarkið á síðustu mínútum leiksins.