4. flokkur karla lék sinn fyrsta leik á Íslandsmóti 11 manna gegn Álftanesi á fimmtudaginn. Strákarnir léku undir getu í fyrrihálfleik og voru undir 3:1 þegar síðari hálfleikur hófst. Þeir snéru heldur betur við blaðinu í seinni hálfleik og skoruðu 6 mörk gegn 4 mörkum heimamanna. Þeir sigruðu því 5:7 í miklum markaleik. Markaskorarar Ægis voru Gummi, Fannar (úr víti), Svavar (2), Pálmi og Tómas (2).
Image URL: /aegirfc/upload/images/4. flokkur karla/DSC00078_thumb.JPG