Sigur hjá meistaraflokk í Lengjubikarnum

4. apr 2011

| umsjon

Sigur hjá meistaraflokk í Lengjubikarnum

Meistaraflokkur karla lék í gær gegn KFR í Lengjubikarnum og fór leikurinn fram á Selfossvelli.  Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og lögðu Rangæinga 2:1.
Ekki byrjaði leikurinn þó vel því KFR komust yfir með sjálfsmarki frá okkar mönnum en þetta var snemma í fyrri hálfleik.  Ný leikmaður Ægis Mahop Luc náði svo að jafna leikinn fyrir hálfleik.
Um miðjan síðari hálfleik skoraði Milan síðan sigurmarkið úr víti.  Okkar menn voru sterkari aðilinn í leiknum og sigurinn því verðskuldaður.
Byrjunar lið Ægis var nokkuð hefðbundið, Hlynur í marki og þeir Trausti, Bjarni, Matti og Jóhann í vörninni.  Á miðjunni voru Luc, Lalli og Ingimar og frammi voru Michael, Sæli og Milan.
Með þessum sigri er liðið efst í riðlinum með 5 stig en er þó búið að spila fleiri leiki en hin liðin.  Síðasti leikur strákanna í Lengjubikarnum er á Skírdag (21. apríl) gegn Ými á Selfossvelli.