Sigrar hjá B og C liðum 5. flokks

12. júl 2011

| umsjon

Sigrar hjá B og C liðum 5. flokks

Sameiginlegt lið Hamars/Ægis í 5. flokk karla lék gegn Álftanesi og Haukum (D lið) í gær.  Leikið var við fínustu aðstæður á Þorlákshafnarvelli.  A liðið spilaði hörku leik gegn mjög sterku liði Álftnesinga en þurftu að játa sig sigraða 4:5 eftir hörku spennandi síðari hálfleik.  B liðið fór hreinlega á kostum og landaði 8:1 sigri.  C liðið hélt uppteknum hætti og vann öruggan 6:2 sigur.  D liðið lék síðan gegn Haukum en þeir mættu með ansi sterkt lið.  Okkar strákar léku þó fínan fótbolta og náðu að lauma inn tveimur mörkum.
Næstu leiki 5. flokks eru á fimmtudaginn en síðan tekur við sumarfrí á Íslandsmótinu.