Síðasti leikur meistaraflokks í dag

20. sep 2014

| Garðar

Síðasti leikur meistaraflokks í dag

WP_20140808_001Meistaraflokkur heimsækir Aftureldingu í lokaumferð Íslandsmótsins í dag. Það er mikil spenna á botni deildarinnar fyrir þessa síðustu umferð þar sem fimm lið geta fallið í 3. deild.  Okkar menn eru í 8. sæti með 23 stig en þar á eftir koma Afturelding, Reynir S og Njarðvík með 21 stig.  Á botninum situr síðan lið Völsungs með 19 stig.  Nú er um að gera að fjölmenna í Mosfellsbæ og styðja strákana til sigurs og áframhaldandi veru í 2. deild.

Áfram Ægir