Samstarfsmál yngir flokka

26. okt 2012

| Garðar

Samstarfsmál yngir flokka

Stjórnir og þjálfarar Ægis, Hamars og Selfoss hafa fundað undanfarið til að ganga frá samstarfsmálum félaganna.  Viðræður hafa gengið vel liggur fyrir að félögin þrjú munu vera í samstarfi með 2. 3. og 4. flokk karla og kvenna komandi tímabil.  Flokkarnir munu æfa hjá sínu félagi og síðan hittast á samæfingum eins og kostur er, nánari útfærsla á þeim verður í höndum þjálfara.

Fyrsta verkefni þessa samstarfs verður Faxaflóamótin sem eru að hefjast.  Fyrstu leikir á því eru hjá 4. flokk karla en þeir eiga leiki núna á sunnudag sem verða leiknir á gervigrasinu á Selfossi.

Áframhald verður á samstarfi Ægis og Hamars í 5. og 6. flokk eins og undanfarin ár en það hefur gengið mjög vel.  Þegar Hamarshöllin verður komin í notkun munu hefjast reglulegar samæfingar hjá þeim flokkum.