Ægismenn fengu Hamar í heimsókn á Þorlákshafnarvöll í dag. Fyrir leikinn sem var í 4. umferð Íslandsmótsins vor bæði lið með 3 stig.
Fyrri hálfleikur var frekar jafn og bæði lið fengu nokkur hálffæri en inn fór boltinn ekki og staðan því 0:0 í hálfleik. Ægismenn urðu fyrir áfalli snemma leiks þegar Guðni Þór meiddist og þurfti að fara af velli Tómas Kjartansson kom inná fyrir Guðna.
Í síðari hálfleik voru Ægismenn sterkari aðilinn án þess þó að skapa sér mörg hættuleg færi. Á 50. mínútu kom Matti inná og fyrir Hauk Má og náði að skerpa talsvert á sóknarleik okkar manna. Uppskeran var síðan mark sem Matejic skoraði á 63. mínútu eftir talsverðan ágang okkar manna. Það sem eftir lifði leiks skiptust liðin að sækja þó alltaf væru Ægismenn líklegri. Þorkell kom inná fyrir Arilíus undir lok leiks og stóð sig með prýði.
Niðurstaðan var glæsilegur 1:0 sigur okkar manna í þessum mikilvæga grannaslag. Eftir leikinn er Ægir með 6 stig í 6. sæti. Næsti leikur er síðan útileikur gegn Reyni/Víði á fimmtudaginn.

