Rýr uppskera í súld á Þorlákshafnarvelli

13. ágú 2013

| Garðar

Rýr uppskera í súld á Þorlákshafnarvelli

Meistaraflokkur mætti liði Reynis frá Sandgerði á Þorlákshafnarvelli í kvöld.  Fyrir leikinn voru lærisveinar Atla Eðvaldssonar einu stigi á eftir okkur og sigur því mikilvægur til að tryggja sæti fyrir ofan þá.

Það var klassískt sumarveður á vellinum í kvöld, súld og sunnan strekkingur.  Ægir byrjaði á móti vindi sem var ekki verra enda erfitt að stjórna boltanum með vindinn í bakið á blautum vellinum.  Jafnræði var með liðunum framan af hálfleiknum, okkar menn fengu ágætis færi án þess að koma boltanum í netið.  En það voru gestirnir sem skoruðu fyrsta markið eftir að aukaspyrna þeirra fór í stöng og leikmaður þeirra fylgdi vel á eftir.  Okkar menn náðu að jafna strax þegar Milan skoraði á 28. mínútu.  Það var allt útlit fyrir að staðan yrði jöfn í hálfleik en á 41. mínútu komust Reynismenn aftur yfir með marki úr glæsilegu skoti utan við teyg.

Í síðari hálfleik voru Ægismenn með vindinn í bakið og því líklegir til að ógna markinu af krafti.  En of mikið af löngum sendingum litu dagsins ljós en þær skiluðu litlu við þessar aðstæður.  Mesta hættan skapaðist í föstum leikatriðum en alltaf vantaði herslu muninn til að koma boltanum á markið.  Gestirnir virkuðu frískti og áttu sóttu hratt þegar þeir unnu boltann.  Það var síðan á 76. mínútu þegar Reynir komst í 1:3 eftir góða stungusendingu.  Eftir það bætti Ægir í sóknina en vörn gestanna hélt og þeir bættu síðan við marki á 89. mínútu og lauk leiknum með 1:4 þeirra.  Liðin höfðu því sætaskipti og erum við nú í 10. sæti með 17. stig

Næsti leikur Ægis er útileikur gegn Dalvík/Reyni sem fer fram næstkomandi sunnudag.WP_20130731_004