H riðill pollamóts KSÍ verður leikinn hér í Þorlákshöfn á morgun. Fyrstu leikir hefjast kl. 14:00 og er síðan spilað stanslaust til 17:30. Liðin sem eru með okkur í riðli eru FH, ÍBV og Fjölnir. Leikið er í A og B liða keppni og munum við vera í samstarfi við Hamar með liðin okkar. Nú er um að gera fyrir alla að skella sér á völlinn og sjá stjörnur framtíðarinnar leika listir sínar.
Pollamót KSÍ í Þorlákshöfn á morgun
6. júl 2011
| umsjon