Pollamót KSÍ 6. flokkur karla

23. jún 2008

| umsjon

Pollamót KSÍ 6. flokkur karla

Pollamót KSÍ fór fram 15. júní á Álftanesi. Lið okkar í A og B – liðum urðu í öðru sæti í sínum riðlum. Strákarnir stóðu sig ágætlega og spiluðu vel á köflum. Það vantaði þó all nokkra leikmenn hjá okkur. Það er jú fylgifiskur þessar árstíðar að fólk tekur sér frí. Það voru heimamenn frá Álftanesi sem höfðu betur í þetta skiptið.
Framundan hjá strákunum eru stífar æfingar alla virka daga frá 10:30 – 12:00.
Áfram Ægir.