Pétur Smári á úrtökumóti KSÍ

23. ágú 2013

| Garðar

Pétur Smári á úrtökumóti KSÍ

Árlega heldur KSÍ úrtökumót  fyrir efnilega leikmenn sem eru 15 ára.  Þar æfa og spila saman efnilegustu strákar og stelpur landsins á Laugarvatni undir stjórn landsliðsþjálfara yngri landsliða.

Úrtökumótið fyrir stráka fór fram síðustu helgi og var Ægismaðurinn Pétur Smári valinn til þátttöku.  Hann spilar með 3. flokki Ægis/Selfoss og hefur verið að leika vel í sumar.  Pétur tjáði fréttaritara að þetta hafi verið skemmtileg reynsla og sér hafi gengið vel.

Það verður gaman að sjá hvort Pétur verði valin til áframhaldandi verkefna á vegum KSÍ.552546_3850217447252_1091545813_n