Pappírssala Ægis – verðhækkun

3. mar 2013

| Garðar

Pappírssala Ægis – verðhækkun

Eins og flestum er kunnugt erum við alltaf með í gangi pappírssölu (wc og eldhúsp.) og hefur Sigrún Huld séð um að taka við pöntunum og afhenda samkvæmt því.

Í ljósi þess að innkaupsverð heimilispappír hefur hækkað talsvert mikið á undanförnum misserum þá erum við tilneydd að hækka útsöluverð okkar til að halda afkomu í lagi.  Við höfum haldið útsöluverði óbreyttu í tæp 2 ár, en verðum nú að bregðast við.

Verð pr. pakkingu verður því frá og með mars 2013:  3.900 kr. fyrir heila pakkningu en 2.300 kr. fyrir hálfa pakkingu.

Einnig ætlum við að breyta innheimtukerfinu hjá okkur. Framvegins verður rukkað á 3 mánaða fresti í stað 1 mánaða til að minnka flækjustig. Hinsvegar dreifum við pappír áfram á 1 mán fresti fyrir áskrifendur, og auðvitað er alltaf hægt að panta í hvenær sem er hjá Sigrúni eins og áður.

Vonum að þessar breytingar hugnist ykkur og þið haldið áfram að styðja við félagið með þessu móti. Þannig að við viljum hvetja alla Þorlákshafnarbúa, ekki síst aðstandendur iðkenda, að nýta sér þessa þjónustu og styrkja um leið félagið með öflugum hætti.

  • Hægt er að panta áskrift eða einstakar pantanir hjá Sigrún Huld Pálmarsdóttir í síma:  483-3877 eða 865-4445, hafa samband með tölvupósti: systap@internet.is    eða á facebook.com/sigrun.palmarsdottir.  Athugið að alltaf verður hægt að afskrá sig.

 

Með bestu kveðjum og kærri ósk um góðar viðtökur,

Stjórn Knattspyrnufélagsins Ægis