Kl. 19:00 spiluðu ,,Oldboys “ við hið firnasterka lið KÍBV, leikurinn fór fram á Framvellinum í Safamýrinni. Leikurinn var hin mesta skemmtun, það náðist áðan í fjölmiðlafulltrúa strákana.
Þetta var hörkuleikur….. KÍBV sem spiluðu í ÍBV búningum náðu forystu í leiknum. Ægismenn jöfnuðu og komust yfir 2-1 þannig var staðan í hálfleik. Snemma í seinni hálfleiknum náðu KÍBV að jafna metin með góðu langskoti. Síðan þegar líða fór á seinni hálfleikinn kom í ljós að þrotlausar og strembnar æfingar strákana í ,, Oldboys “ eru að skila sér. Undir lokinn náðu strákarnir að skora 2 mörk og lokatölur urðu 4 – 2 og góður útisigur staðreynd.
Áfram Ægir….
Image URL: /aegirfc/upload/images/Stjórnarfundur 2007/PICT0587_thumb.jpg