Meistaraflokkur karla tapaði 5:0 gegn ÍR í Lengjubikarnum í gærkvöldi. Fyrri hálfleikur var slakur hjá okkar mönnum og 3:0 forusta heimamanna verðskulduð í hálfleik. Seinni hálfleikur var mun betri hjá Ægi og áttu þeir fullu tréi við íR en heimamenn juku þó forustuna og unnu 5:0 sigur.
Í hóp Ægis vantaði talsvert af leikmönnum og nokkrir ókomnir en yngri leikmenn fá þá bara aukna leikreynslu í staðinn sem mun nýtast þeim vel síðar.
Næsti leikur liðsins verður laugardaginn 13. apríl gegn Gróttu og hefst hann kl. 11:30 á Gróttuvelli.